Stefnumótun
Hringborðið veitir ráðgjöf og faglega leiðsögn á sviði opinberrar stefnumótunar, samráðs og þátttökulýðræðis. Við vinnum með sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sem vilja móta nýja stefnu, uppfæra eldri stefnu eða þurfa aðstoð við innleiðingu stefnu.
Hönnun samráðsferla
Hringborðið veitir ráðgjöf við hönnun samráðsferla þegar taka þarf ákvarðanir í málum sem varða hagsmuni almennings eða nærumhverfi fólks og líklegt er að veki ólíkar skoðanir.
Við slíkar aðstæður skiptir miklu máli að vanda undirbúning, skýra tilgang samráðsins og velja aðferðir sem stuðla að uppbyggilegu samtali og trausti. Með markvissri hönnun samráðsferla er hægt að skapa betri forsendur fyrir upplýstar ákvarðanir, auka þátttöku og draga úr líkum á ágreiningi síðar í ferlinu.
Mótun hverfaráða
Hringborðið veitir ráðgjöf við mótun hverfaráða og annarra vettvanga fyrir þátttöku íbúa.
Við aðstoðum sveitarfélög við að skilgreina hlutverk, umboð og verklag sem stuðlar að markvissri þátttöku og uppbyggilegu samtali um málefni nærsamfélagsins.
Vel hönnuð hverfaráð geta styrkt tengsl milli íbúa og sveitarfélags og skapað betri forsendur fyrir ákvarðanatöku.
Ráðgjöf
Hringborðið veitir alhliða ráðgjöf á sviði stefnumótunar, samráðs og þátttökulýðræðis. Hvort sem markmiðið er að efla þátttöku, skapa betri samtalsleiðir eða leysa úr ágreiningi sem hefur komið upp.
Saman finnum við leiðir sem byggja á trausti, samtali og vandaðri ákvörðunartöku.
Tökum betri ákvarðanir saman.
Kallað eftir afstöðu íbúa og hagaðila
Við undirbúning ákvarðanatöku getur skipt sköpum að kanna viðhorf og þarfir þess samfélags sem ákvörðunin varðar.
Hver eru líklegustu ágreiningsmálin sem geta komið upp? Vantar upplýsingar til íbúa og hagaðila? Þarf að afla frekari gagna?
Slík undirbúningsvinna getur auðveldað næstu skref til muna, aukið traust og einfaldað allt ferlið.
Það fer eftir viðfangsefninu hverju sinni hvaða leiðir skila mestum árangri. Þær geta verið rýnihópar, vinnustofur, fundir, skoðanakannanir og notkun samráðsgáttar.
Hringboðið sérhæfir sig í að vinna að slíkum undirbúningi.