top of page

Um Hringborðið

Hringborðið sérhæfir sig í ráðgjöf og fræðslu á sviði þátttökulýðræðis, samráðs og stefnumótunar. Við aðstoðum sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki við að innleiða þátttökumenningu, efla samtal, auka traust eða leysa viðfangsefni líðandi stundar. Markmiðið er að taka betri ákvarðanir saman.

Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir

Ráðgjafi

Sigurlaug er stjórnmálafræðingur með áralanga reynslu af samráði, stefnumótun og þátttökulýðræði. Hún starfaði sem sérfræðingur í íbúalýðræði hjá Reykjavíkurborg í 7 ár þar sem hún leiddi vinnu við mótun fyrstu lýðræðisstefnu borgarinnar og starfaði í framhaldinu við innleiðingu hennar. Sigurlaug rannsakaði íbúalýðræði við Háskóla Íslands á árunum 2008-2011 og hefur síðan skrifað, starfað, kennt og veitt ráðgjöf á sviði lýðræðis, samráðs og þátttöku almennings.

Hafðu samband hringbordid@hringbordid.is eða í síma +354 845-4036

bottom of page